KRUppboð
Áritaður bolti úr bikarúrslitunum 1994
Safngripur

Áritaður bolti úr bikarúrslitunum 1994


Byrjunarboð

30.000 kr.

Hefst eftir—
Hægt að bjóða þegar leikur byrjar

Í samstarfi við KR

Allir leikmunir koma beint frá félaginu og ágóði rennur til KR.

Vottað af KR

Allur varningur er vottaður af KR.

Engin boð enn

Upplýsingar

Tegund
Safngripur

Sunnudaginn 28. ágúst 1994 mættust KR og Grindavík í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli. 5.339 áhorfendur sáu KR-inga binda enda á langa bið, því félagið hafði ekki unnið stóran titil í meistaraflokki karla síðan 1968.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Rúnar Kristinsson KR yfir á 54. mínútu. Tveimur mínútum síðar kom Einar Þór Daníelsson inn af bekknum og hann gulltryggði sigurinn á 73. mínútu. Mótherjinn var einmitt Grindavík, félagið sem Einar Þór lék með áður en hann kom í Vesturbæinn. Guðjón Þórðarson stýrði KR á sínu fyrsta tímabili og sigurinn tryggði félaginu sæti í Evrópukeppni bikarhafa.

Byrjunarlið KR: Kristján Finnbogason, Óskar Hrafn Þorvaldsson, Izudin Daði Dervic, Þormóður Egilsson (fyrirliði), James Pattison, Rúnar Kristinsson, Hilmar Björnsson, Sigurður Bjarni Jónsson, Tryggvi Guðmundsson, Heimir Guðjónsson og Salih Heimir Porca. Varamennirnir Einar Þór Daníelsson og Tómas Ingi Tómasson komu inn á í síðari hálfleik.

Glöggir KR-ingar taka eftir einu nafni sérstaklega. Óskar Hrafn Þorvaldsson, sem byrjaði úrslitaleikinn fyrir 32 árum, er í dag þjálfari KR.

Boltinn sem hér er boðinn upp er úr bikarúrslitunum 1994 og áritaður af öllum leikmönnum KR-liðsins. Einstakur safngripur frá deginum þegar biðin endaði.

Leikurinn

KRKR
—
BreiðablikBreiðablik
—

Leikvangur
Meistaravellir
Dagsetning
24. október 2026
Upphaf leiks
14:00